Þjóðlíf


Þjóðlíf - 01.05.1987, Síða 58

Þjóðlíf - 01.05.1987, Síða 58
I N N L E N T Kynorkan braggast í Japan Af loðnuhrognum í Neskaupstað ÞAÐ ER KUNNARA en frá þurfi að segja að Japanir kaupa umtalsvert magn af fryst- um loðnuhrognum af okkur íslendingum. Einnig er það alkunna að þjóðin í landi hinnar rísandi sólar er tilbúin að greiða til- tölulega hátt verð fyrir þessa vöru, ekki síst fyrir þær sakir að þar er það almenn trú að hrognin hafi hressandi og bætandi áhrif á kynorku þeirra sem neyta góðgætisins. í Japan eru hrognin álitin munaðarmatur og eru þau gjarnan borðuð sem forréttur, krydduð með salti og soyasósu, eða þá að hægt er að narta í þetta sælgæti á fínni börum þar. Tekið skal fram að ávallt eru hrognin borin fram hrá. Á þessu ári voru samtals framleiddar 5.600 Iestir af loðnuhrognum á íslandi fyrir Japansmarkað og er andvirði þessarar fram- leiðslu rúmlega hálfur milljarður króna. í ár sátu íslendingar einir að framleiðslunni, en oft áður hafa Norðmenn veitt okkur harða samkeppni á þessu sviði. í>að sem er sérkennilegt við vinnslu loðnuhrognanna er að hún á sér stað á afar skömmum tíma, hálfum mánuði eða svo. Hrognatakan fer fram í lok loðnuvertíðar þegar hrognafylling hrygunnar er á bilinu 22-24 prósent og öll sú loðna, sem hægt er að vinna hrogn úr, er veidd fyrir suðvestur- eða vesturlandi. Það er því ljóst að sjávarút- vegsbæirnir á landinu eru í mjög misjafnri aðstöðu til að taka þátt í vinnslu þessa við- kvæma hráefnis. Eðlilega er auðveldast að vinna hrognin á stöðunum sem næst liggja SKRIFLEGT IÁNSLDFORÐ frá Húsnæðisstofnun er örugg ávísun á lán. Bíddu eftir því áður en þú gerir nokkuð annað. Með lánsloforðið í höndum er orðið tímabært að ganga frá bindandi kaupsamningi, fyrr ekki. Húsnæðisstofnun ríkisins ■ Síldarvinnslan í Neskaupstað: Brátt kætast Japanir. veiðisvæðunum, en þó er það svo að nokkur fyrirtæki í fjarlægari landshlutum taka þátt í framleiðslunni. Eitt þessara fyrirtækja er Síldarvinnslan hf. í Neskaupstað. í ár fór hrognavinnslan hjá Síldarvinnsl- unni fram á tímabilinu 4.-21. mars. Samtals voru frystar 457 lestir af hrognum á þessum tíma og er heildarverðmæti afurðanna um 42 milljónir króna. Að sögn Finnboga Jónssonar fram- kvæmdastjóra Síldarvinnslunnar er ágæt út- koma á þessum þætti starfseminnar, en hann lagði á það áherslu að hrognin gæfu meira af sér fyrir útgerðina en vinnslu- stöðina. Öll hrognin, sem unnin voru hjá Síldar- vinnslunni hf. í ár, komu frá tveimur skipum, Berki og Beiti. Bæði þessi skip eru í eigu fyrirtækisins og naut það því bæði hagn- aðar skipanna og vinnslunnar. Auk þess gerir þessi sérstaða Síldarvinnslunnar, að eiga bæði vinnslustöð og veiðiskip, það að verkum að hægt var að samhæfa veiðar og vinnslu með skipulegum hætti. Til glöggvunar skal þess getið að Japanir kaupa hvert kg. af hrognum á 92 krónur. Skipið sem aflar hráefnisins, fær 44 kr. fyrir kg., en vinnulaun í vinnslunni eru talin nema um 16 kr. á hvert kg. Vinnslustöð þarf síðan að sjálfsögðu að greiða kostnað við rekstur tækja og búnaðar, en eins og áður er getið er vinnslutíminn stuttur og lætur nærri að framleiðslutækin, sem notuð eru við vinnslu hrognanna, standi ónotuð ellefu og hálfan mánuð á ári. Nú eru þessi tæki tiltölu- lega flókin og dýr, en þrátt fyrir það fullyrð- ir Már Lárusson, verkstjóri við vinnsluna, að þau séu búin að borga sig. En hvernig skyldi framleiðsla hrognanna fara fram? Pegar veiðiskip kemur með loðnufarm að landi, sem hægt er að taka hrogn úr, er byrjað á því að dæla aflanum hægt á land. Þegar loðnan er komin á land fer hún í gegnum svokallaðan kreistara sem pressar hrognin úr hrygnunni og eru hrognin og vökvi, sem þeim fylgir, strax aðskilin frá loðnunni. Áður en hrognin eru flutt í vinnslustöðina eru þau látin fara í gegnurn forskiljur, sem hreinsa mestu óhreinindin úr þeim. í vinnslustöðinni sjálfri eru hrognin síðan hreinsuð aftur og aftur í þartilgerðum skiljum og pottum þar til þau eru tandur- hrein. Að lokum eru þau þurrkuð, sett í öskjur og fryst. Már Lárusson hjá Síldarvinnslunni segir að vel hafi gengið að selja þessa framleiðslu fyrirtækisins og hafi japanskir matsmenn, sem taka út vöruna, verið afar ánægðir með gæði hennar og útlit. Telur hann að meðferð hráefnisins um borð í veiðiskipum og í vinnslustöð skipti sköpum varðandi gæði framleiðslunnar. Sem dæmi um mikla áherslu á þennan þátt hjá Síldarvinnslunni nefnir Már að áhafnir Beitis og Barkar hafi ávallt ísað loðnuna í þeim veiðiferðum þeg- ar aflað var til hrognatöku. Fyrir sjómenn á loðnuveiðiskipunum skiptir vinnsla loðnuhrognanna miklu máli- Sem dæmi má nefna að Beitir lagði alls upp til vinnslu 266 lestir af hrognunt á vinnslu- tímanum í mars sl. Hásetahlutur fyrir hrogn- in var urn 167 þúsund kr., en alls var háseta- hluturinn á Beiti 615 þúsund kr. þá tvo mánuði sem skipið lagði stuhd á loðnu- veiðar eftir sl. áramót. Heildarloðnuafli Beitis á þessum tíma var rúmlega 15 þúsund lestir. Þegar þetta er ritað er lokið við að skipa út megninu af loðnuhrognunum, sem fram- leidd voru á landinu í síðasta mánuði. Flutn- ingaskipin nálgast Japan hraðbyri með þetta hnossgæti innanborðs — og brátt mun kyn- orkan braggast í Japan. ■ Smári Geirsson/Neskaupstaö J 58
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.