Skagfirðingabók - 01.01.2011, Blaðsíða 95
SIGURJÓN PÁLL ÍSAKSSON
LEGSTEINN
KRISTÍNAR TORFADÓTTUR
____________
Í Skagfirðingabók 21 (1992) birtist
grein eftir mig um legsteina í Hóla
dómkirkju. Meðal þeirra er steinn sem
fannst 1988 við endurreisn kirkjunn
ar. Steinninn er í fimm hlutum og
mjög skaddaður og torlesinn. Vorið
1991 las ég áletrunina með aðstoð
Mjallar Snæsdóttur, og var niðurstað
an sú að þetta væri legsteinn (CHRI)
STINAR TORLA(KSDot)ur, frá árinu
1682. Ég fór yfir helstu prentaðar
heimildir frá þessum árum, en fann
ekki neina Kristínu sem gat verið átt
við. Kristínarnafnið var samt algengt í
ætt Gísla biskups Þorlákssonar (1631–
1684). Kristín Þorláksdóttir virtist því
vera óþekkt nema á þessum legsteini.
Í ársbyrjun 2009 var ég að fara yfir
úttekt Hólastaðar 1685, sem þá var ný
prentuð, og rakst þá á eftirfarandi um
gjafir Ragnheiðar Jónsdóttur, ekkju
Gísla biskups, til dómkirkjunnar:
Sömuleiðis sæmir nú virðuleg hústrú
Ragnheiður Jónsdóttir dómkirkjuna
með vönduðu og vel sæmilegu for
tjaldi fyrir kórdyrum að norðan fyrir
legstað sinnar sálugu systurdóttur
Kristínar Torfadóttur.1
Og í úttekt Hólastaðar 1692 segir um
gjafir Ragnheiðar:
Sömuleiðis sæmdi virðuleg hústrú
Ragnheiður Jónsdóttir dómkirkjuna
með vönduðu og vel sæmilegu for
tjaldi fyrir kórdyrum að norðan, fyrir
legstað sinnar sálugu systurdóttur
Kristínar Torfadóttur, … einnig seg
ir hún hingað hafi gefinn verið silfur
kross fyrir legstað Halldóru sálugu
Jónsdóttur sem hjá henni var.2
Kristín Torfadóttir er eflaust stúlkan
sem hvíldi undir þessum legsteini.
Leiðrétta þarf áletrunina til samræmis
við þetta.3
1 Jón Þ. Þór (2008, 150). Rúna K. Tetzschner skrifaði upp úttektina.
2 Jón Þ. Þór (2008, 180). Halldóra Jónsdóttir var líklega dóttir Jóns Illugasonar (~1620–1685) á
Urðum í Svarfaðardal. Jón var nátengdur Hólastað, hafði verið ráðsmaður þar 1666–1668 og
móðir hans, Halldóra Skúladóttir, var systir Þorláks biskups Skúlasonar. Halldóra Jónsdóttir var
fædd um 1670 og hefur líklega dáið á árabilinu 1685–1692, þ.e. um eða innan við tvítugt, ógift
og barnlaus. Hún hefur verið á Hólum við nám í kvenlegum listum hjá frænku sinni Ragnheiði
Jónsdóttur. Um Jón Illugason, sjá Stefán Aðalsteinsson (1978, 66–67).
3 Stafafjöldinn gengur betur upp ef föðurnafnið er TORFA(Dott)ur, og þá eru einnig rök fyrir að
breyta (CHRI)STINAR í (KRI)STINAR.
95