Jazz - 01.04.1947, Blaðsíða 17

Jazz - 01.04.1947, Blaðsíða 17
TÍMARITIÐ JAZZ Útgefandi Hljóðfæraverzl. Drangey Ritstjóri Tage Ammendrup Afgreiðsla Laugaveg 58 Slmar: Auglýsingar og ritstjórn 3311 Afgreiðsla 3896 ALÞVÐUPREN'TSMIÐJAN H*F blaðaúrklippur og dóma um söng frúarinnar, svo að aðdáendur hennar hér geti fylgzt með ferð hennar. Við óskum Hallbjörgu góðrar ferðar og vonum að henni megi vel farnast. Harry Dawson hinn vinsæli píanóleikari, sem margir þekkja, hefur nú stofnað quintett en hefur hvergi ráðið sig fast. Hann biður að heilsa öllum vinum sínum hér og vonast til að koma einhverntíma við tækifæri. Harry mun á næstunni rita grein fyrir tímaritið Jazz og munum við reyna að fá aðra þekkta útlenda hljómsveitarstjóra til að rita greinar sérstaklega fyrir Jazz. Harry Parry leikur nú inn á plötur fyrir brezka útvarpið einnig leikur hann nú inn á margar plötur fyrir Pharlophone. Nýjasta platan, sem Harry hefur leikið fyrir Pharlo- phone er platan R 3024 Frenesi og Indian Love Call í sérstakri útsetningu Parry. Harry hlakkar mikið til að koma hingað og einnig til að kynnast íslenzkum jazzistum. Miirg 'blöð í Bandaríkjunum eru mjög harð- orð í garð útvarpsstöðva þar í landi vegna þess að auglýsendur ráða fræga listamenn til þess að mæla með vörum þeirra. Margir jazz- söngvarar þar í landi lifa í því að syngja um hve t. d. smurningsolía sé dásamleg, sé hún frá Johnsen & Johnsen. Joe Daniels and his hot shots eru nú á Ítalíu í hljómleikaferð og munu einnig fara til Aust- urríkis. Þaðan mun Joe fara til Bretlands og svo til Islands. Hingað mun hann koma sein- ast í apríl eða fyrst í maí. Charlie Ventura er hættur að leika með Gene Krupa og hefur stofnað sína eigin hljómsveit, hann er stígandi stjarna. í næsta hefti mun birtast grei n um Joe Daniels og nákvæmlega um, hvernig hljóm- sveit hans verður skipuð. Gerð verður tilraun til þess að hafa „Jamm Session" með Joe Daniels og beztu íslenzku jazzistunum. Joe Daniels hefur nú haft samninga við Pharlaphone í 11 ár, leikið 250 sinnum í út- varp og einnig hefur hann leikið í kvikmynd- um.Hann er álitinn einn bezti trommuleik- ari, sem nú er uppi. Slam Steward er áður lék bassa í hljóm- sveit Goodmans og er einn bezti bassisti Bandaríkjanna hefur nú stofnað quartett með negrum og hefur quartettinn unnið sér mikla frægð. Hljómsveit Jimmy Dorsey leikur nú í Pen- sylvania gistihúsinu í Hollywood. Cing Cole tríóið leikur í NBC á hverju laugardagskvöldi og nýtur meiri hylli en nokkurntíma áður. JAZZ 15

x

Jazz

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazz
https://timarit.is/publication/724

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.