Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Page 39

Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Page 39
Hvað er framundan? Engu verður um það spáð á þessari stundu, hvern- ig og hvenær þeim hildarleik lýkur, sem nú er háð- ur um heim allan. En úrslit hans munu hafa veruleg áhrif á starfsháttu og starfsmöguleika alþýðuhreyf- ingarinnar um víða veröld, og þá einnig hér. Eins og nú er högum háttað, eru jafnaðarmannaflokkarnir í öðrum löndum víða hnepptir í viðjar ófrelsisins. ís- lenzk alþýða sendir þeim samúðarkveðjur og óskar og vonar, að þeim takist sem fyrst að brjóta hlekki einræðis og ofbeldis, og taka að nýju þátt í gerbreyt- ingastörfum á lýðræðisgrundvelli. Það er vissulega von allrar alþýðu manna á íslandi, að þessu stríði ljúki sem fyrst, og ljúki með sigri lýðræðisins. Þá hefst nýtt tímabil í sögu alþýðusamtakanna um heim allan. Það þjóðskipulag, sem ríkti fyrir stríð, rís ekki að nýju í sömu mynd. Ný öfl munu ryðja sér til rúms innan þjóðfélaganna, og sá lærdómur, sem af stríðinu verður dreginn, mun efalaust verða sá fyrst og fremst, að bæta hag alþýðunnar um heim allan. Alþýðuflokkurinn á íslandi þarf vissulega að vera þess megnugur í styrjaldarlok, að hefja viðreisnar- baráttuna, efla uppfræðslustarfsemi sína og áróður, svo að hann verði hlutverki sínu betur vaxinn. Hvað snertir afstöðuna inn á við, þá má segja, að meiri óvissa ríkir nú í íslenzkum stjómmálum en nokkru sinni fyrr. Alþingi situr á rökstólum. Stjórn Sjálfstæðismanna hefir beðizt lausnar, og ennþá 37

x

Þingtíðindi Alþýðuflokksins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þingtíðindi Alþýðuflokksins
https://timarit.is/publication/1889

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.