Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Page 61

Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 20.11.1942, Page 61
EndurskoSun jlokkslaganna. Flokksþingið ákveður að kjósa 5 manna milli- þinganefnd til þess að athuga rækilega lög flokksins og skipulag og skili nefndin áliti til flokksstjórnar- innar ekki síðar en í árs'iok 1943, en flokksstjórnin sendi síðan álit og tillögur nefndarinnar til flokks- félaganna til umsagnar, en þau skili aftur sínu áliti til flokksstjórnarinnar fyrir 1. maí 1944, (Frá Ingimar Jónssyni.) Alþýðuflokkurinn og Alþýðusambandið. Alþýðuflokkurinn hefir fyrir tveimur árum horfið úr skipulagslegum tengslum við ALþýðusamband ís- lands. Þó að tengsl þessi hafi þannig rofnað, vill 17. þing Alþýðuflokksins lýsa yfir því, að í fullu sam- ræmi við stefnu og starfsaðferðir flokksins frá upp- hafi óskar hann samstarfs við verkalýðssamtökin, þau, sem byggð eru á lýðræðisgrundvelli og vilja •vinna að hagsmunum launastéttanna í landinu eins og Alþýðusambandið hefir gert í undanfarinn aldar- fjórðung. Um leið árnar þingið Alþýðusambandi ís- lands allra heilla í störfum þess fyrir íslenzka alþýðu. (Frá Stefáni Jóhanni Stefánssyni.) Kosningar í milliþinganefndir: 1. Fjáröflunarnefnd: Jón Brynjólfsson, Sæmundur Ólafsson, Ágúst H. Pétursson, Arngrímur Kristjánsson, Sigurrós Sveinsdóttir. 59

x

Þingtíðindi Alþýðuflokksins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þingtíðindi Alþýðuflokksins
https://timarit.is/publication/1889

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.