SÍBS blaðið - 01.06.2015, Blaðsíða 5

SÍBS blaðið - 01.06.2015, Blaðsíða 5
SÍBS BLAÐIÐ 2015/2 5 að nota farartæki til að komast leiðar sinnar, því skipulag margra íbúahverfa er þannig að ekki er hægt að komast leiðar sinnar á annan hátt nema á bíl. Það að stunda líkamsrækt og hreyfa sig er því ekki alltaf svo auðvelt í erilsömu nútíma þjóðfélagi og það krefst oft á tíðum mikillar skipulagningar og getur á stundum verið flókin og umfangsmikil aðgerð. Vísindalegar staðreyndir Afleiðingar neikvæðra breytinga á lifnaðarhætti fólks í hinum vestræna heimi eru skýrar en talið er að rúmlega þriðjungur íbúa heims nái ekki ráðlögðu lágmarki daglegrar hreyfingar. Á Íslandi vantar einnig nokkuð upp á að þessum lágmörkum sé náð en lágmarkið er hreyfing í 30 mínútur á dag. Íslenskar rannsóknir sýna að um 15 mínútur á dag vantar upp á til að Íslendingar nái alþjóðlegum ráðleggingum. Árið 2009 var talið að fimmti hver jarðarbúi hreyfði sig ekki nægilega mikið. Þrátt fyrir að mikil þekking sé til staðar um jákvæð áhrif af reglubundinni hreyf- ingu fer hún minnkandi. Aukið hreyfingarleysi fólks hefur í för með sér aukna tíðni ofþyngdar og offitu og á það ekki síst við um börn og ung- linga, en einnig fullorðna og eldri borgara. Fjöl- margar erlendar rannsóknir sem og rannsóknir unnar af vísindamönnum Háskóla Íslands hafa á undanförnum árum sýnt að líkamleg hreyfing barna fer minnkandi strax við 6 til 8 ára aldur og þessi neikvæða þróun heldur síðan áfram fram eftir öllum aldri ef ekki er spyrnt við fótum. Hreyfing eldri unglinga og ungs fólks sem er rétt komið yfir tvítugt er verulegt áhyggjuefni, en íslenskar rannsóknir sýna að einungis þriðji hver 18 ára unglingur uppfyllir ráðleggingar um daglega hreyfingu. Nýleg íslensk langtímarann- sókn hefur einnig sýnt að bæði líkamlegt þrek og hreyfing ungmenna yfir átta ára tímabil (frá 15 til 23 ára) minnkaði um allt að 50%. Í þessari rannsókn kom einnig í ljós að við 23 ára aldur var hreyfing í raun svo lítil að hana mátti bera saman við hreyfingu einstaklinga sem voru komnir hátt á áttræðisaldur. Í þessu samhengi er einnig mikilvægt að gefa því gaum að hreyfi- mynstur og þrek kynjanna er ólíkt og er það ekki tengt neinu ákveðnu aldursskeiði. Karlar hreyfa sig yfirleitt meira og eru með betra líkamlegt þrek en konur, en þær stunda yfirleitt hreyfingu með minni ákefð í meira mæli en karlar. Langtímarannsóknir sem hafa skoðað þróun og breytingar á ólíkum heilsufarsþáttum hjá einstaklingum hafa sýnt mikil tengsl á milli fyrri lifnaðarhátta fólks og líkunum á mismunandi heilsufarsvandamálum seinna á lífsleiðinni. Í rannsóknum sem framkvæmdar hafa verið við Háskóla Íslands hefur verið sýnt fram á að þeir einstaklingar sem strax á unga aldri eru of þungir eða of feitir, eru í meiri hættu á að lenda í erfiðleikum með líkamsþyngd og/eða holdarfar seinna á lífsleiðinni. Sama má segja um einstaklinga sem hreyfa sig mikið sem börn og/eða unglingar, þeir einstaklingar eru líklegri til að stunda reglulega hreyfingu seinna í lífinu. Nýlegar rannsóknir sýna einnig að það fólk sem notaði mikinn tíma á unga aldri í að horfa á sjónvarp eða vera í tölvuleikjum er líklegra til að nota mikinn tíma í sambærilegi hluti seinna í lífinu. Í þessu samhengi skiptir einnig umhverfið, fjölskyldan og vinir máli því þeir einstaklingar sem eiga foreldra sem eru duglegir að hreyfa sig eru líklegri til að hreyfa sig en þeir einstaklingar sem eiga foreldra sem eru kyrrsetufólk. Þessi lýsing undirstrikar svo ekki verður um villst að ákveðnir lifnaðarhættir fólks strax á barns aldri geta haft umtalsverða þýðingu fyrir viðkomandi einstakling seinna í lífinu. Því er mjög mikilvægt að einblína á jákvæða heilsuhegðun strax á fyrstu árum lífsins og viðhalda henni allt lífið til að fyrirbyggja neikvæða þróun heilsufars. Á þann hátt eykst heilsulæsi fólks sem þýðir að við erum meðvitaðri um hvað er hollt og heilsusam- legt og tökum ákvarðanir út frá þeim forsendum. Í þessu samhengi er mikilvægt að draga ekki of sterkar ályktanir út frá einstökum lífsstílsþáttum og nauðsynlegt er að skoða fleiri heilsufarsþætti samtímis. Almennt er viðurkennt að neikvæðum lifnaðarháttum fólks, t.d. hreyfingarleysi, fylgja ýmsir áhættuþættir og lífsstílssjúkdómar sem mikilvægt er að skoða í tengslum við aðra þætti eins og svefnvenjur, félagslega þætti sem og andlega þætti. w w w . b r a m m e r . i s Í rannsókn kom í ljós að við 23 ára aldur var hreyfing í raun svo lítil að hana mátti bera saman við hreyfingu einstaklinga sem voru komnir hátt á áttræðisaldur.

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.