SÍBS blaðið - 01.06.2015, Blaðsíða 16

SÍBS blaðið - 01.06.2015, Blaðsíða 16
SÍBS BLAÐIÐ 2015/216 Hreyfing í góðum félagsskap Síðastliðið haust stóð SÍBS fyrir göngunám- skeiði fyrir almenning í samvinnu við Einar Skúlason, sem er í forsvari fyrir gönguhópi sem kallast Vesen og vergangur. Það gekk svo vel að ákveðið var að efni til annars göngunámskeiðs í vor og í framhaldi af því sérstakrar áskorunar undir yfirskriftinni 100 kílómetrar á fjórum vikum. „Ég á félaga sem hefur verið að vinna í tengslum við SÍBS,“ segir Einar þegar ég hitti hann til að forvitnast nánar um þessar göngu- ferðir. „Hann hafði fylgst með okkur í Veseni og vergangi og vissi af áhuga innan SÍBS um að standa fyrir námskeiðum fyrir almenning í heilsumálum. Honum þótti upplagt að tengja okkur saman sem varð til þess að ákveðið var að bjóða upp á göngunámskeið í haust. Hugsunin var frá upphafi sú að beina athygl- inni að fólki sem stundaði ekki mikla hreyfingu af einhverjum ástæðum, hvort sem það voru sjúkdómar eða eitthvað annað. Hugmyndin var jafnframt að byrja mjög létt og herða svo smám saman áreynsluna, byggja fólk upp. Það tókst mjög vel. Mig minnir að um 160 manns hafi mætt í fyrstu gönguna. Og í framhaldinu voru ávallt hátt í hundrað manns í hverri göngu sem farin var einu sinni í viku. Síðan voru margir sem héldu áfram inn í veturinn, og fóru líka að taka þátt í öðrum göngum, göngum sem þeir höfðu aldrei treyst sér í áður, en eftir að hafa farið í gegnum þetta prógramm styrktist fólk. Svo núna í vor ákváðum við að gera þetta aftur. Efndum til þess sem við kölluðum „vor- áskorun“. Byrjuðum létt og enduðum á nokkuð erfiðari göngum. Því miður setti veðrið talsvert strik í reikninginn, það var alltaf eitthvað að því, stormviðvaranir og þess háttar. Margir voru því hræddir við að fara út að ganga, en þó mættu alltaf um 30-40 manns í hverri viku.“ 100 km á fjórum vikum „Eftir þessar tvær áskoranir ákváðum við að bjóða upp á enn eina sem myndi henta öllum, eða hundrað kílómetra áskorun sem tekin yrði á fjórum vikum. Sumir urðu hvumsa, þótti vegalengdin ansi mikil, en þegar maður fór að útskýra fyrir fólki að þetta væru bara 3,6 kílómetrar á dag, eða eins og þrjár ferðir milli Lækjartorgs og Hlemms, þá hljómaði það ekki eins svakalegt og í fyrstu. Það geta nefnilega langflestir gert þetta, bara mismunandi hratt og við mismunandi aðstæður, úti eða inni, í halla eða á jafnsléttu og svo framvegis. Þetta vakti mikla lukku, um 500 manns skráðu sig til þátt- töku. Þessi áskorun hefur aðallega verið kynnt á Facebook og þar hefur fólk verið að pósta árangur sinn og skiptast á athugasemdum og hvatningu, og þannig skapast það aðhald sem þarf til að fólk klári dæmið. En þótt þessar göngur fari fram víða og fólk geri þetta bæði eitt og með öðrum, þá höfum við Trausti Pálsson félagi minn úr Veseni og vergangi skipulagt um 15 göngur í tengslum við átakið, svo þær hafa einnig verið í boði. Útfærslan er því með ýmsu móti en markmiðið það sama, að fólk hreyfi sig og bæti styrk sinn og vellíðan. Það er viss grasrótarstemmning í þessu hjá okkur. Hundrað kílómetra áskorunin miðast þannig við að gera eitthvað á hverjum degi, stundum gengur fólk langt, stundum stutt, en málið er að gera eitthvað daglega. Þetta voru einmitt einkunnarorð konu sem ég þekkti og lést úr krabbameini fyrir nokkrum árum: Eitthvað á hverjum degi – það var hennar regla.“ Gott form til að lifa með sjúkdómi Einar þekkir vel gildi hreyfingar fyrir þá sem glíma við einhvern sjúkdóm og tengist sjálfur einu aðildarfélaga SÍBS. „Ég er með astma og ofnæmi og hef þurft að glíma við það vandamál frá því ég var lítið barn. Og það er skemmtilegt að þetta samstarf mitt við SÍBS skuli hafa komist á því ég uppgötvaði mjög snemma að til þess að halda astmanum í skefjum þá þyrfti ég að hreyfa mig miklu meira en þeir sem voru ekki með astma. Maður þarf að vera í svo góðu formi Viðtal Páll Kristinn Pálsson

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.