SÍBS blaðið - 01.06.2015, Blaðsíða 18

SÍBS blaðið - 01.06.2015, Blaðsíða 18
SÍBS BLAÐIÐ 2015/218 Á undanförnum árum hafa vinsældir golf íþróttar- innar aukist gríðarlega. Aðstæður til iðkunar hafa batnað þrátt fyrir erfitt veðurfar og mögu- leiki á æfingum innanhúss gerir kylfingum kleift að æfa einnig yfir vetrartímann. Mikil aukning er á framboði golfferða til útlanda allan ársins hring og eftirspurn hefur aukist að sama skapi. Fyrir alla aldurshópa Vinsældir golfsins má rekja til margra þátta. Íþróttin hentar fólki á öllum aldri og er kjörin fjöl- skylduíþrótt þar sem fjölskyldan getur samein- ast í gleði og útiveru. Golfið er krefjandi, bæði líkamlega og hugarfarslega, og stöðugt er hægt að bæta árangur og setja sér ný markmið. En til að geta stundað golfið til lengri tíma, notið þess og náð árangri þarf almenn heilsa að vera góð og líkamsástandið gott. Þar sem golfhreyf- ingin krefst mikils samspils milli hreyfanleika, stöðugleika og nákvæmni eru margir þættir sem þarf að huga að. Auk líkamlega formsins vegur jákvætt hugarfar, gott sjálfstraust og góð einbeiting þungt. Regluleg hreyfing, heilbrigt mataræði, hugarró og góður svefn eru allt þættir sem þurfa að vera í jafnvægi til að byggja upp og viðhalda góðri heilsu. Því er mikilvægt að skilja samhengið, þekkja líkama sinn, greina veikleika sína og styrkleika og vinna heildrænt að því að efla hreysti og fyrirbyggja heilsubrest. Þrátt fyrir að golfíþróttin innihaldi mikla hreyf- ingu og góða útiveru er meiðslatíðni ansi há. Golfhreyfingin eða sveiflan er ósamhverf og alltaf í sömu áttina. Það eykur hættu á að ósamræmi myndist milli vöðvahópa sem veldur óæskilegu álagi á liðamót. Meiðsli hjá kylfingum geta komið fram hvar sem er í líkamanum. Algengustu meiðslin eru þó í baki, olnbogum og öxlum en einnig þarf að huga vel að úlnliðum, hnjám og mjöðmum. Hvað þarf góður golfari að hafa? 1. Vöðvastyrk og samræmi milli vöðvahópa 2. Þol og úthald 3. Stöðugleika og jafnvægi 4. Liðleika 5. Góða líkamsvitund og samhæfingu Vöðvastyrkur og samræmi milli vöðvahópa er mikilvægt til að hafa vald á sveiflunni og stuðla að lengra höggi. Styrktarþjálfun styrkir vöðva, bein og sinar auk þess að auka beinþéttni og grunnefnaskipti í líkamanum. Dæmi um styrktaræfingar eru tækja- og lóðaæfingar en einnig er mögulegt að gera fjölbreyttar æfingar með eigin líkamsþyngd. Þol og úthald er einnig mikilvægt til að geta spilað 18 holur og viðhaldið einbeitingu, en 18 holur samsvara u.þ.b. 10 km göngu. Ýmis ytri áreiti eins og veður, fuglar og hljóð geta truflað einbeitingu. Þol- og úthaldsþjálfun bætir starf- semi hjarta, lungna og æðakerfis. Það eykur súrefnisupptöku, lækkar hvíldarpúls og eykur blóðflæði. Dæmi um þolþjálfun eru röskleg ganga, skokk og hjólreiðar. Stöðugleiki og jafnvægi þarf að vera fyrir hendi til að geta haldið réttri líkamsstöðu og stjórnað sveiflunni. Stöðugleikaþjálfun byggir á æfingum sem styrkja innra vöðvakerfi um liðamót og fyrir- byggir álagsmeiðsl. Dæmi um stöðugleikaþjálfun eru æfingar á jafnvægisbretti, bolta, jafnvægis- púða og æfingar sem gerðar eru á öðrum fæti. Í formi fyrir golfið Anna Borg, fagstjóri þjálfunar hjá Heilsuborg Grein Þrátt fyrir að golf- íþróttin innihaldi mikla hreyfingu og góða útiveru er meiðslatíðni ansi há. Markviss þjálfun er mikilvæg til að draga úr þeirri hættu.

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.