Ólavsökan


Ólavsökan - 01.07.1943, Blaðsíða 8

Ólavsökan - 01.07.1943, Blaðsíða 8
ar eitt af skáldum Færeyinga sagði mér, að þar væri ekki talið forsvaranlegt af ungum manni að stofna heimili fyrr en hann hefði eignazt þak yfir höfuðið. Við höfum á síðustu árum nokkuð fengið að kynnast bókmenntum Færeyinga. Þessi úrtök úr bókmenntum þeirra hafa fært okkur heim sanninn um það, hvað lítið þjóðfélag getur af- rekað. Þó eigum við eftir að kynnast því enn betur, því að fleiri færeyskar bækur munu koma út hér innan skamms. Erlendur maður spurði mig nýlega, hvar ég hefði séð mesta fegurð. „Við Norðurland,“ svaraði ég, „en næst við Trongisvág í Færeyj- um að kvöldi til“. Þar sá ég svo mikla og ljúfa fegurð, að ég stóð heillaður. Við erum náfrændur Færeyingar og ís. lendingar. Við íslenlingar höfum verið of tómlátir um kjör þessara frænda okkar. Hinir smáu verða sterkir, þegar þeir standa saman. Það ættum við Islendingar að skilja. Nú steðjar mikil hætta að Færeyingum. Eg vænti þess að þeim takist að vernda þjóð sína í því flóði, sem nú æðir yfir eyjarnar þeirra. Eg vænti þess, að eðli og þróttur Þrándar í Götu lifi enn með þeim. Eg þekki nokkra Færey- ínga, og það gefur mér trú á, að þeim takist að sigra í sínu stríði. Vilhj. S. Vilhjálmsson, blaðamaður. Höviskir sveinar stígi á gólv um tíma. Færeyskt viðurlag. Sumarið 1928 dvaldist ég nálægt þriggja vikna tíma í Þórshöfn, höfuðstað Færeyja, vegna kennaranámskeiðs, sem haldið var þá, eins og venja hefir verið þar um alllangt skeið. Þegar við varð komið, fengu færeysku kennar- arnir um margra ára bil mann héðan frá ís- landi til þess að kenna íslenzku á námskeiðum þeirra, og varð ég þetta ár fyrir valinu. Eg á margar góðar endurminningar frá þessu stutta tímabili, sem eg var í Þórshöfn, og för mín var á ýmsan hátt fróðleg og lærdómsrík fyrir mig. Sannast að segja vissi eg nauðalítið 8 um Færeyjar fram yfir það, sem sagt var með fáeinum línum í landafræðinni, sem við lásum í skólanum, — og svo hafði eg oft séð fær- eyska sjómenn á götum Reykjavíkur á vorin, en engum þeirra kynnzt. Eg hygg, að sama muni flestir Islendingar hafa getað sagt um kynni sín af Færeyjum og þjóðinni, sem þar býr, enda þótt þar eigi í hlut næstu nágrannar okkar og frændur, sem átt hafa að ýmsu leyti líka sögu og við, — fámenn eyjaþjóð undir er- lendu oki. En fyrir mér varð sjón sögu ríkari. Eg sá háar og sæbrattar eyjar og fjöll Færeyja rísa úr hafi, og ef eg hefði ekki verið að koma að heiman, hefði mér fundizt eg vera að koma heim. Landslagið minnir svo mikið á ísland, veðrátta og gróðurfar einnig, svipur og yfir- bragð lands og sjávar allt einnar veru. En dvöl mín þar, það, sem ég heyrði og sá, og kynni mín af fólkinu eru mér þó enn hugstæðari, og árum saman og enn í dag ómar fyrir vitund minni hinn háttbundni kliður og einkennilega töfr- andi seiður færeyskra þjóðkvæða, sem voru sungin við dans um alla Þórshöfn á Ólafsvök- unni. Já, eg var svo heppinn að vera þátttakandi í færeyskri Ólafsvöku í heimalandi hennar. Þá sá ég það, að Færeyingar kunna að halda hátíð og eiga hátíðadag, sem þjóðin öll sameinast um. Allir, sem vettlingi gátu valdið, karlar og kon- ur, ungir og gamlir, komu úr öllum áttum til Þórshafnar, norðan úr Norðureyjum, sunnan úr Suðurey og alla vega þar á milli, á bátum sínum og ferjum, svo sem eins og allir væru í einni mikilli kaupstaðarferð. Þórshöfn eins og þand- ist út og varð að stærðar borg, og göturnar fylltust af fólki. Flestir karlmenn báru þjóð- búninga sína, — efalaust allir, sem áttu þá. Um kvöldið var hvert samkomuhús fyllt. Og aðal- skemmtunin var dans, færeyskir þjóðdansar, sem Færeyingar einir allra Norðurlandaþjóða hafa varðveitt framan úr öldum, og allir sungu undir hin gömlu danskvæði, sem mörg hver eru einnig varðveitt um aldir á vörum þjóðarinnar, — löng söguleg kvæði um ástir og hetjudáðir löngu horfinna kynslóða, samhæfð við það ein- kennilega hljóðfall, sem dansinum hentar, seið- andi þjóðlög, sem Færeyingar einir kunna. Mér varð hálfþungt um hjartað þarna inni í stóra samkomuhúsinu í Þórshöfn. Gólfið dundi undir taktföstu fótataki hundraða manna og kvenna í hringiðu dansins. Loftið titraði af ÓLAVS0KAN

x

Ólavsökan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ólavsökan
https://timarit.is/publication/1879

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.