Ólavsökan


Ólavsökan - 01.07.1943, Blaðsíða 12

Ólavsökan - 01.07.1943, Blaðsíða 12
Jóhannes úr Kötlum GÓÐRA VINA FUNDUR Logn var yfir Ijósu sundi, Lýru bar aö strönd. Fögur voru í sólskininu Fœreyja lönd. Gulli slœr á vík, gleði vor er rík, en bak við — en bak við oss er dauðinn. Stóð þar einn í fjörunni með fagursilfrað hár og skotthúfuna rauða, en skein við himinn blár. Annar steig af skipsfjöl með augu djúp af mildi. Honum lutu sveinar fimm, en hvítur fálki á skildi. Heill vert þú nú, Símun, og lieil þín kœra byggð. Velkominn sértu, Aðalsteinn, með vini þína og tryggð. Hvað er að frétta af íslandi? Einbúinn bað mig flytja bros til þeirra átján, sem úti í liafi sitja. Hló liinn aldni þulur og handlék sinn staf. Bróðurþeli íslendingsins bjarmaði af. Flokkur gekk til Fólkskóla, — fregnað var um sinn. Göfug frúin Sanna gestina leiddi inn. 12 ÓLAVS0KAN

x

Ólavsökan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ólavsökan
https://timarit.is/publication/1879

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.