Franskir dagar - 01.07.2015, Blaðsíða 15

Franskir dagar - 01.07.2015, Blaðsíða 15
Fpaj\skip ckg&r ® iesjo\irs freux^ðis * göngu og safnast svo saman kringum varðeld í skógarijóðri, gítarleikur og söngur dunar, bjór er teygaður af stút og menn rífa í sig harðfiskinn af mikilli áfergju. Að þræða fjallvegi og slóða þykir heimamönnum hin besta skemmtun. En að hossast í jeppunum gerir okkur aðkomufólkið ósköp auðmjúkt og lítilmótlegt. Við gerum okkur grein fyrir því að það er heil listgrein að kunna að sfyra farartæk- inu á vaði yfir straumþunga á með aðra hönd á stýri, en stilla jafnframt ballansinn á Mozart í græjunum með hinni. Þetta land er heil ljósa- og litasymfónía, sem öðru hvoru er rofin af þögn- inni eða miklum fossanið. Álfarnir eru aldrei langt undan, til dæmis rekumst við á þá í grænni gróðurvin í miðri eyðimörkinni á hálendinu, bæði milli tveggja steina sem mosanum hefiir nánast tekið að hylja en líka í leirpyttum og gufuhverum undir fjallshlíð. Við komum auga á þá í fjarska í stórfurðulegu landslagi, en einnig í augnaráði vitavarðarins sem við hittum á enda veraldar og h'ka í brosi Kristmundar Þorleifssonar þegar hann, yfirvegaður, kenndi okkur hvernig ætti að beita á önguhnn og renna fyrir þorskinn í firðinum sínum. En tröllin eru heldur aldrei langt undan og stundum gera þau manni grikk, eins og þegar þau renndu steinvölu undir dýnuna okkar í fjallaskálanum þannig að okkur kom ekki blundur á brá eða þegar þau settu egghvassan stein í vegkantinn þannig að dekkið sprakk á jeppanum okkar. En á endanum rættist merkilega vel úr þessu öllu saman, þegar við renndum aftur inn í höfuðborg landsins og drukkum í okkur menningarlega andrúmsloftið og hina smekk- legu fegurð miðbæjarins. Höfðinglegar móttökur hlutum við í landi sem er enn að mörgu leyti unglegt, rétt eins og það endurspeglast í hinu kröftuga og glæsta landslagi sem það prýðir. SÖLUSKÁLI S.J. FÁSKRÚÐSFIRÐI & 475 1490 SKYNDIBITASTAÐUR OG BENSÍNSTÖÐ VIÐ ÞJÓÐVEGINN OPNUNARTÍMI KL. 9-22 ALLA DAGA 15

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.