Franskir dagar - 01.07.2015, Blaðsíða 32

Franskir dagar - 01.07.2015, Blaðsíða 32
Frarvskir’ ckgaj3 ® Lesjours |r>aj\gðjs Aftasta röð: Jóhanna Björnsdóttir, Albert Eiríksson, Halldóra Eiríksdóttir, Guðný Elísdóttir, Vilborg Bjömsdóttir, Elsa S. Elísdóttir. Miðröð: Þorsteinn Björnsson, Sigmundur Sigmundsson, Steinn Eiríksson og Árdís Hulda Eiríksdóttir. Fremsta röð: Þórunn Jónsdóttir, Olga Sigurbjörnsdóttir, Steinn Bjömsson, María Sigurbjömsdóttir og Ingibjörg Sigurbjömsdóttir. í framtíðinni. Yfir háveturinn var farið á skíði á hólnum og skautað á tjörninni þar fyrir neðan og auðvitað voru byggð snjóhús, farið í snjókast og gerðir snjókarlar og -kerlingar. Ekki var úrvalið af útileiktækjum, aðeins tvær rólur. Innandyra var einnig lengi vel lítið við að vera en síðustu árin voru komin ýmis spil eins og Söguspilið, skák, Svarti galdur, Mastermind og Matador og einnig var Bobb-borð sem fékk að finna fyrir því. Venjulegir spilastokkar voru mikið notaðir, Kleppari, Manni, Vist og Rússi voru spilaðir og jafnvel minnast sumir þess að hafa spilað Fatapóker. Flöskustútur er leikur sem vekur upp góðar minningar sem og Blindingja- leikur. Einhverjir drengir rifjuðu upp að þeir hefðu laumast út á kvöldin og bankað á glugga hjá stelpunum til að stríða þeim, jafnvel stungið höfðinu inn um gluggann á klósettinu. Nokkrir komu með leikföng að heiman; bíla, dúkkulísur og bækur en það var samt ekki mikið um það. Leikurinn „A hvað bendi ég?“ var leikinn á kvöldin þegar búið var að slökkva ljósin. Sá sem var í neðri kojunni rak fingur upp fyrir bríkina á efri kojunni. Sá sem lá þar setti einhvern h'kams- part á fingurinn og puttaeigandinn reyndi að giska á hvað hann væri að benda. Ogleymanlegt var þegar puttinn átti að lenda á rasskinninni á einni, ekki vildi betur til en svo að hún missti jafnvægið og datt niður á gólf úr efri kojunni. Annar leikur eftir að allir voru komnir í rúmið var að skríða upp í hjá hver annari og skrifa eða teikna til skiptis á bakið á hinni og giska á hvaða orð var skrifað eða teiknað. Stundum var farið í leikinn „Skal eða skal ekki?“ Ein stúlkan gekk hvað lengst í þessum leik þegar hún dró leistann sinn fram á fætinum og með skæri í hinni hendinni sagði hún: „skal eða skal ekki?“ Einhver svaraði henni „skal“ og hún hugs- aði sig ekki tvisvar um og klippti sokkinn í sundur. En það var alltaf einhver tregi og heimþrá, börn grétu og kennarar segja frá nemendum sem þeir hringdu heim til og létu sækja vegna óyndis í 32 þeim. Þá voru það yfirleitt börn sem voru í yngri kantinum og þau komu aftur síðar. Fyrir hver jól var haldin skólaskemmtun, Litlu jólin, þar sem allir nemendur höfðu hlutverk. Á þessa skemmtun komu foreldrar og aðrir að- standendur. Mikið var lagt í þessa skemmtun og nemendur æfðu látlaust söngva, leikrit og upplestur. Margs er að minnast og eru þetta einar af skemmtilegustu minningum nemenda. Upp í hugann koma atriði úr Saumastofunni þar sem mátti sjá stúlkur á rauðum sokkum með mótmælaspjöld sem á stóð: Jafnrétti í rúmunum, dömufrí á dansleikjum og konur í prestastól. Ógleymanlegir eru leikþættir byggðir á glímu Gláms og Grettis, Lata-Gvend og X og Z eru hjón. Þegar Litlu jóhn voru þá var kennslustofan skreytt hátt og lágt, þar á meðal kennslutaflan, en þetta var eina skiptið sem mátti nota litkrítar á hana. Oftast voru það þeir firllorðnu í húsinu sem skreyttu töfluna með dásamlegum jólamyndum af helgileiknum, kertum og jólakveðju. I minn- ingunni var eins og séð inn í helgidóm þegar opnað var inn í kennslustofima fyrir Litlu jólin, þvíh'k var dásemdin. Farið var með nemendur í nokkur ferðalög á þessum árum.Til dæmis var farið um Fljótsdal- inn með skemmtilegu stoppi í Hallormsstaðar- Kennarar, ráðsfólk og böm 1966- 7: Einar Baldursson og Sigurlaug Guðmundsdóttir ráðskona. 1967- 8: Margrét Ivarsdóttir og Sigurlaug Guðmundsdóttir ráðskona. 1968- 9: Valdís Hjartardóttir og hennar maður Leifur Jósteinsson bryti. 1969- 70: Hildur Gunnlaugsdóttir og hennar maður Páll Steinþórsson bryti. Sonur þeirra Gunnlaugur Páll. 1970- 71: Guðmundur Þorsteinsson og hans kona Hulda Guðmundsdóttir ráðs- kona. Börn þeirra: Magnús og Valborg. Þeim til aðstoðar var Jóhanna Þorsteins- dóttir. 1971- 3: Valdís, Leifur og sonur þeirra Hannes Þór. 1973- 4: Einar Baldursson, Anna Ingvars- dóttir hans kona og dóttir þeirra Aðalbjörg. 1974- 6: Birgir Stefánsson, Aðalbjörg Hjartardóttir og synir hennar Hjörtur og Heiðar Már. 1976- 7: Pétur Þórðarson, kona hans Guðrún Ólafsdóttir og dætur þeirra Guðný Eva og Kolbrún Hrönn. 1977- 8: Birgir Stefánsson og fjölskylda. skógi og suður í Öræfi. Eitt skipti var farið til Akureyrar og gist í skóla þar. Kirkjutröppurnar voru taldar og margir staðir á Norðausturlandi skoðaðir. Nemendur böðuðu sig í Grjótagjá og Lystigarðurinn var heimsóttur sem og Grenj- aðarstaður. Hjá nokkrum nemendum stendur upp úrTungu- holtsdvölinni atburður sem gerðist einn veturinn. Kennarinn hafði oft verið nokkuð pirraður við nemendur og þegar einhverjir strákanna földu skíðastaf einnar stelpunnar og hún fór að leita Hðsinnis kennarans fékk hún þau svör að hann hefði nú ekkert með svona mál að gera. Stúlku- kindinni varð svo um svör kennarans að hún fór inn í herbergi og grét og grét. Samnem- endur stúlkunnar fundu til með henni og fannst kennarinn ónærgætinn og sérdeilis ekki starfi sínu vaxinn. Ein skólasystirin stakk þá upp á því að nemendur skyldu bara strjúka þá um kvöldið. Það varð úr að sjö nemendur struku en þeir þrír sem höfðu falið skíðastafinn urðu eftir, fannst þetta vera sér að kenna og þeir ættu því ekki að taka þátt í strokinu. Þeir plötuðu þó kennarann þegar hann fór að leita eftir horfnu nemendunum og sögðu að trúlega hefðu hinir krakkarnir farið í labbitúr inn í Tungudal. En sjömenningarnir fóru sem leið lá út í Búðaþorp. Styttu þeir sér leið yfir Leiruna og þegar þeir voru staddir þar þá sást bíli koma á fleygiferð frá Tunguholti. Rökkvað var og strokugemlingarnir brugðu á það ráð að beygja sig niður á leirunum og þykjast vera steinar. Sá feluleikur gekk upp og út á Búðir fór hópurinn og bankaði upp á heima hjá einni stúlkunni. Móður hennar varð brugðið þegar hún opnaði útidyrnar og þar á tröppunum voru úfnir og rjóðir Tunguholtskrakkar. Hringt var í foreldra nemendanna og einhverjir þeirra komu, sem og oddviti hreppsins. Nemendum var skudað inn íTunguholt aftur og fengu alvarlegt tiltal en strokið hafði þó ekki eftirmála fyrir þá, trúlega hafa foreldrarnir og oddvitinn verið sammála um að eitthvað hefðu strokukindurnar til síns máls. Ekki er vitað annað en að kennslan og samskipti kennara og nemendanna hafi gengið snurðulaust fyrir sig til vorsins. En í huga þessara strokubarna er þetta hið mesta ævintýr bernskunnar og lýsing fyrir djörfung og dug þeirra á unga aldri. Þeir kennarar sem réðust til starfa voru oft ungir að árum og reynslulitlir. Þegar þessi grein var rituð hittum við nokkra þeirra og fengum þeirra sýn á skólastarfið. Á þessum árum var atvinnu- ástandið í landinu oft slæmt og þegar leitað var til fólks til að taka starfið að sér hugsaði það sig ekki lengi um, enda ágætlega launað. Einn kennarinn sagðist ekki hafa gert sér grein fyrir ábyrgðinni sem fylgdi starfinu, hreinlega ekki haft vit á því. Töluverð einangrun var hjá kenn- urum og minnist Einar frá Sléttu þess að Jón á Eyri hafi haft áhyggjur af því að honum leidd- ist og því brá Jón á það ráð að tefla við Einar í gegnum sveitasímann sem þá var. Ein símalína var fyrir suðurbyggðina og Tunguholt tilheyrði henni,Jón og Einar ákváðu að hringa ekki því þá myndi öll sveitin fylgjast með, heldur lyfta upp símtólunum hjá sér á miðnætti. Síðan sátu þeir með sitt taflborðið hvor og tefldu í gegnum símann. Segja má að þetta sé einna helst h'kt Skype nútímans. Ráðskonur og brytar stóðu vaktina með kennur- unum og var reynsla þeirra mismikil. Nemendur minnast fæðisins sem hefðbundins sveitamatar

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.