Franskir dagar - 01.07.2015, Blaðsíða 23

Franskir dagar - 01.07.2015, Blaðsíða 23
ír’ðjxskir ckgar iesjo\irs frarxcjdis að veruleika rúmu ári eftir að Gunnar kom til Fáskrúðsfjarðar. Hann hafði að sjálfsögðu frum- kvæðið og þetta varð aðdragandinn að stofnun Leiknis. Fyrstu starfsárin Fyrsta stjórn félagsins, kjörin á stofnfundinum, var þannig skipuð: Formaður Gunnar Olafs- son Hrauni, ritari Guðlaugur Sigurðsson Odda, gjaldkeri Jakob Ingvar Stefánsson Dagsbrún og varaformaður Ingibjörg Magnúsdóttir Hrauni. Stjórnin var óbreytt annað starfsár félagsins, árið 1942 og einnig árið 1943 að því undanskildu að Jakob Jóhannesson varð gjaldkeri í stað Jakobs Ingvars Stefánssonar. Leiknir hóf strax á fyrstu árum sínum nám- skeiðahald í helstu íþróttagreinum og Gunnar Ólafsson sá um kennsluna. Fyrsta árið, 1941, var leikfimi kennd í þrjá mánuði. Þátttakendur voru 10 til 15 karlar og 10 til 12 konur. Kennsla í handknattleik fór fram í maí og júní. Það nám- skeið sóttu 16 karlar og 14 konur auk 40 til 50 barna á aldrinum 10 til 14 ára. Arið 1942 kenndi Gunnar leikfimi á vegum félagsins í þrjá mánuði og knattspyrnu, handknatdeik og frjálsar íþróttir í einn og hálfan mánuð hverja grein. Ekki tekur Leiknir þátt í mörgum íþróttamótum fyrstu árin. Keppt er þó í handknattleik við Ung- mennafélag Stöðfirðinga strax á fyrsta starfs- árinu og keppt er í reipdrætti innan félagsins. I júlímánuði árið 1942 keppti Leiknir svo við Ungmennafélag Stöðfirðinga í frjálsum íþróttum, knattspyrnu og handknattleik. Keppnin fór fram á Búðum og voru þátttakendur 20 talsins. Fim- leikasýning var haldin í barnaskólanum þriðja jóladag árið 1942. Þar sýndu 14 piltar og 9 stúlkur undir stjórn Gunnars. Skemmtanir voru ekki margar fyrstu árin. A fyrsta vori félagsins var haldin skemmtun um hvítasunnuna og árið eftir hélt félagið hlutaveltu og tvo dansleiki. I ársskýrslu Leiknis 1942 er sagt að lagðar hafi verið 500 krónur í Sundlaugarsjóð Búðakaup- túns. Ekki kæmi mér á óvart að þarna væri að finna upphaf undirbúnings að því þrekvirki sem bygging sundlaugarinnar verður að teljast, á þeim erfiðu tímum sem þá voru. Leikni var fljótlega falið að sjá um hátíðahöld á þjóðhátíðardaginn og félagið sá um hátíð í tilefni lýðveldisstofnunarinnar, 17. júní 1944. Þar sýndi fimleikaflokkur undir stjórn Gunnars. Búðahreppur veitti félaginu fjárstyrk strax á öðru starfsári þess og var hann bundinn því skilyrði að félagið stæði fyrir kennslustarfi í knattleikjum og fleiri íþróttagreinum. Handbolti og fleiri greinar voru stundaðar á Búðagrundinni en annars var farið inn fyrir fjörð og þar var snemma gerður nothæfur sparkvöllur. Einnig var unga fólkið oft í ýmsum leikjum og íþróttum á svæði upp af aðalbryggju þorpsins. Fljódega hófust samskipti við Stöðfirðinga og aðallega keppt í handbolta og knattspyrnu. Svo kom að því að íþróttafólkið fór að sækja mót norður á næstu firði og upp á Hérað en vegleysur gerðu slíkar ferðir erfiðar mörg fyrstu árin. Þá var venja að fara á bátum í keppnisferðir á milli fjarða. Skíðafélagið Svanur Gunnar stofnaði einnig Skíðafélagið Svan sem hann sagði hafa verið hfiðargrein út úr Leikni. Tilgangurinn var að halda saman nokkrum áhugasömum skíðastrákum svo vitnað sé til orða hugsjónamannsins og allir voru þessir ungu menn einnig í Leikni. Félagið réðst í það þrekvirki að reisa skíðaskála uppi á Búðaheiði. Þar taldi Gunnar afbragðsgott skíðaland. Skíði voru nær engin til í þorpinu og eitt fyrsta verk félagsins var að kaupa átta eða tíu pör af skíðum. Safnaði félagið peningum til kaupanna og kostaði hvert par, með bindingum og stöfum, 45 krónur. Fjórir af þessum lærisveinum Gunnars tóku þátt í fyrsta skíðamóti á Austurlandi sem haldið var á Fagradal í mars 1945. Það voru þeir Ásmundur Jónsson, Hjalti Eyjólfsson, Trausti Gestsson og Óskar Ágústsson sem seinna varð einn atkvæða- mesti skíðamaður á Austurlandi. Gunnar varð síðar forgöngumaður um byggingu Skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði og fyrsti um- sjónarmaður hennar. Einn þeirra ungu manna, sem naut leiðsagnar Gunnars, er Sigurður Haraldsson. Snemma kom í ljós að hann var efni í fjölhæfan íþróttamann, var nokkuð jafnvígur á flestar greinar íþrótta og stundaði íþróttir fram á fullorðinsár. Hann var einnig stjórnarmaður Leiknis á fyrri hluta sjötta áratugarins eða þar til hann flutti burt frá Fáskrúðsfirði. Þegar Sigurður fór að eldast og hugsa til þess að draga úr vinnu tók hann að æfa íþróttir að nýju og hefur keppt með góðum árangri í köstum, bæði hér á landi og erlendis og ætíð undir merkjum síns gamla félags. Sigurður hefur verið gerður að heiðursfélaga í Leikni. Bygging sundlaugar Fljódega kom sú hugmynd upp innan Leiknis að beita sér fyrir sundlaugarbyggingu á Fáskrúðs- firði og þetta varð eitt helsta baráttumál félags- ins í mörg ár. Hugmyndinni var vel tekið en þó var erfitt að þoka málinu áfram. Mikið hjálpaði að Eiður Albertsson, sem var einn af forystu- mönnum Búðahrepps, varð snemma fylgjandi máfinu og lagði því lið. Sundlaugarbyggingin var mikil fjárfesting fyrir sveitarfélagið. Þá var íþróttasjóður ríkisins tekinn til starfa og úr honum fengust peningar til bygg- ingarinnar sem létti mikið undir. Gunnar minntist þess að Einar Sigurðsson í Odda hafi verið drif- fjöðrin í byggingunni. Ungmenna- félagar unnu mikla sjálfboðavinnu, einkum við að grafa grunninn. Allt efni þurfti að haka upp og grjótið var borið upp úr grunninum á hand- börum. Sundlaugin á Fáskrúðsfirði var þriðja laugin sem byggð var á Austurlandi, áður voru komnar laugar á Eiðum og í Neskaupstað. I fyrsta tölublaði tímaritsins Gerpis, sem kom út í júlí 1947, var sagt frá sundlaugarbyggingunni. Pistlinum lauk á þessum orðum: Undanfarin ár hefir sundhöll verið í smíðum á Fáskrtiðsfirði og var smíði hennar lokið á siðast- liðnu vori. Sundhöllin er ennpá óvígð en varpó tekin til notk- unar 16. júli sl og var pann dag almenningi til sýnis. Vorupá sýndarpar helstu sundaðferðir. Eftir pað hófustpar sundnámskeið,fyrst fyrir nemendur barnaskólans en síðarfyrir almenning. Sundkennari varparfyrstu vikurnar Olafur Olafsson, leikfimis- kennari, á Seyðisfirði.Aðgangseyrirað sundlauginni er kr. 2,00 jyrirfullorðna og kr. 1,00fyrir börn. Aðsókn var mikil og voru sundgestir umpað ca. 1750 fyrstu2 vikurnar ogeftir hálfan annan mánuð var talapeirra orðin átfóld íbúatala bæjarins, en íbúar erupar 600. Með sundhöllpessari hafa Fáskrúðsfirðingareignast mikið og myndarlegt menningartœki. Vaxandi íþrótta- og félagsstarf Eftir stríðslok urðu miklar breytingar á íslensku þjóðlífi og þess gætti í starfsemi frjálsra félaga- samtaka sem á öðrum sviðum. Iþróttastarfið eflist og í ársskýrslum félagsins frá því um og eftir 1950 fjölgar frásögnum af íþróttaæfingum og keppnis- ferðum. Frækilegasta íþróttaafrek Leiknismanns frá þeim tíma er án efa sigur Guðmundar Vil- hjálmssonar í 100 m hlaupi á Landsmóti UMFÍ á Eiðum árið 1952. Hann hljóp á tímanum 10,9 sek. og setti landsmótsmet sem stóð í áratugi. Hann var á þeim tíma einn besti spretthlaupari landsins. Félagsstarfið sjálft stóð einnig í blóma um þetta leyti. Skemmtinefnd var starfandi innan félags- ins og beitti hún sér fyrir öflugu félagslífi, hélt samkomur með skemmtidagskrá og dansleikjum og setti á svið leiksýningar. Leikið var bæði árin 1950 og 1951, svo dæmi sé tekið, og síðara árið urðu sýningarnar 23 talsins. Þá var efnt til leik- ferða til Eskifjarðar, Norðfjarðar, Seyðisfjarðar og Stöðvarfjarðar. Formaður Leiknis á fyrri hluta sjötta áratugarins var Margeir Þórormsson. I ársskýrslunni 1951 er fyrst minnst á umræður innan Leiknis um byggingu félagsheimilis og sú umræða fer vaxandi næstu ár. Tókst sam- vinna með Leikni og öðrum félögum í sveitar- félaginu og áttu þau 20% hlut í félagsheimilinu Skrúð. Lögðu félögin fram gríðarmikla vinnu árum saman við fjáröflun til byggingarinnar auk Skúli Óskarsson setur beimsmet í réttstöðulyftu i 75 kg flokki er hann lyfti 315,5 kg á móti í Laugardalshöll i nóvember 1980. Fyrir aftan Skúla má sjá Hermann Gunnarsson íþróttafréttamann sem lýstiþessum glasilega árangri í Sjónvarpinu. 23

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.