Franskir dagar - 01.07.2015, Side 42

Franskir dagar - 01.07.2015, Side 42
f'PöJAskir dagö,p ® [esjovirs fpeu\(jðJs Texti: Albert Eiriksson Heimildir: Franst Biskví. Höf. Elín Pálmadóttir Ur endurminningum ævintýramanns eftir Jón Ólafsson (1850-1916) frá Kolfreyjustað. Árið 1858 kom Frakkinn séra Bernard til Fá- skrúðsfjarðar. Hann lagði sig fram við að læra íslensku, safnaði jurtum og hafði vetursetu. Sr. Bernard söng messur á sunnudögum, aðstoðaði frönsku fiskimennina og heimamenn. Hann skrifaði sýslumanni og sótti um að reisa hús í þorpinu til að veita aðhlynningu og útdeila sakramentinu. Beiðninni var hafnað. Arið 1897 byggðu frönsku samtökin Oeuvres de Mer sjúkraskýli með sex sjúkrarúmum á Fá- skrúðsfirði, og síðar viðbyggingu sem hýsti kap- ellu. I kringum aldamótin 1900 voru 30-40 hús í þorpinu. Danskur prestur, Max Osterhammel, hafði umsjón með byggingu hússins og starfaði þar um tíma. I fýrstu voru með honum systir Marie Justine og systir Elisabeth báðar franskar. Arið 1903 höfðu þær sinnt 137 sjúklingum þar af 26 í sjúkraskýlinu á 340 legudögum. Eftir að Franski spítalinn var reistur var húsið notað sem sjómannaheimili, þar var oft fjölmennt. Fáskrúðsfirðingar tóku prestinum og systrunum einkar vel og leituðu mikið til þeirra. „Vesalings litlu húsin, sem raða sér í allri auðmýkt við fjöruborðið" er haft eftir sjómanni er kom til Fáskrúðsfjarðar. Og annar segir:„...þegar við höfðum spásserað þessa einu götu - en gata er raunar óþekkt hugtak þar.“ I æviminningum sfnum segir Jón Ölafsson (1850-1916) frá Kolfreyjustað svo frá: Eitt vor (1859) kom stórt grámálað flutningsskip til Fáskrúðsfjarðar. Það var seglskip, eins og öll frönsku skipin, sem hingað komu þá (herskipin voru einnig seglskip). Þetta skip var eitt hið skrautlegasta og stærsta. Tveim, þrem dögum eftir að skipið kom, kom bátur frá því út að Kol- freyjustað og voru þar á þrír gestir, prestarnir Bernard og Baudouin, er komu til að setjast að hér á landi, og með þeim dr. phil. Ölafúr Gun- lögsen, er fýlgdi þeim hingað heim, en fór utan aftur með sama skipinu. Hann var þá, að ég ætla, ritstjóri blaðsins »Le Nord«, er út kom í Belgíu. Eg man vel eftir honum, enda sá ég hann tvisvar, því að fám dögum síðar var faðir minn boðinn inn á prestaskipið, sem kallað var, og var honum boðið að hafa mig með, ef hann vildi. Þar var góður fagnaður um borð, og að afloknum mið- degisverði fóru frönsku prestarnir, Ólafúr Gun- lögsen og við feðgarnir og tveir þjónar með í land og settumst að í sólskininu í fögru lækjargili á ströndinni og var þar drukkið kaffi og kryddvín (liqueur). Faðir minn og prestarnir og Olafúr töluðu latínu saman. Ólafúr sagði einhver fá orð stöku sinnum við mig á íslenzku. Annars heyrði ég hann varla tala íslenzku. 42

x

Franskir dagar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.