Sjálfsbjörg - 01.07.1996, Blaðsíða 7

Sjálfsbjörg - 01.07.1996, Blaðsíða 7
Þingfulltrúar Sjálfsbjargar á Sauðárkróki ásamt meðstjórnanda í framkvæmdastjórn, f.v. Hallgrímur Eymundsson, Anna Þórðardóttir og Baldur Bragason. 3. Starfshópur um fjárhagsmál og fjár- hagsáætlun. 4. Starfshópur um ályktanir þingsins. Húsnæðisvandi TVyggingastofnunar leystur Starfshópur um lífeyris- og trygg- ingamál beindi því meðal annars til framkvæmdastjórnar að hún leitaði til ASÍ, BSRB og BHMR um að skipuð yrði samráðsnefnd þessara aðila til að koma fram stefnu þessa þings gagnvart ríkisvaldinu varðandi málefni öryrkja. Einnig lagði nefndin til að þingið skor- aði á Alþingi og ríkisstjóm að ráða þeg- ar bót á húsnæðisvanda Tryggingastofn- unar ríkisins. Starfsemi Tryggingastofnunar ríkis- ins fer í dag fram á fjórum stöðum í Reykjavík og Kópavogi. Aðgengi fatl- aðra er mjög takmarkað að flestum þessara staða og bílastæðamál eru al- gjörlega ófullnægjandi. Það hlýtur að torvelda alla starfsemi Tryggingastofn- unar ríkisins og gera hana bæði ómark- vissari og kostnaðarsamari, að hún skuli ekki öll vera undir sama þaki. Auk þess er til vansa að viðskiptamenn skuli ekki geta rekið öll sín erindi á sama stað, í stað þess að þurfa jafnvel að fara á fjóra mismunandi staði, segir í ályktun hóps- ins. Einnig lagði hópurinn fram ítarlegt álit varðandi örorkubætur, sem lagt var til að kölluðust lífeyrislaun, um aðskiln- að elli- og örorkulífeyris, vasapeninga og margt fleira sem tíundað er í þingtíð- indum 28. þings. Hafi fólk áhuga á að nálgast þau, má hafa samband við skrif- stofu Sjálfsbjargar, lsf. Bætt aðgengi Starfshópur um tveggja ára fram- kvæmdaáætlun á grundvelli stefnu Sjálfsbjargar lagði til að þrýstingi yrði beitt gagnvart stjórnvöldum og hlutað- eigandi um að aðgengismál í skólum, á vinnustöðum og heimilum verði bætt, auk þess sem stefnt verði að því að op- inberar byggingar verði allar aðgengi- legar fyrir árið 2000. Einnig taldi hóp- urinn mikilvægt að styrkja foreldra fatl- aðra barna, kynna þeim rétt sinn, skapa foreldrum af landsbyggðinni aðstöðu til að koma með börn sín til greiningar, sjúkraþjálfunar, í sértækt nám o.fl. Áhrif fötlunar Starfshópur um ályktanir þingsins taldi m.a. að í framhaldi af hugmynda- samkeppni skólabarna í grunnskólum þyrfti að vinna áfram að námsefni fyrir grunnskóla um fötlun og áhrif hennar á líf einstaklinga og fjölskyldna í sam- vinnu við kennara og fræðsluyfirvöld. Einnig bæri að stefna að því að fá fram hugmyndir fatlaðra um hvernig þeir sjái lífi sínu best borgið. Fá fram einstaklingsskoðanir sem síðar verði flokkaðar í forgangsröð og athuga hvað unnt sé að gera til að fá nýlega fatlað fólk til starfa í féiaginu. Hvemig unnt er að mæta þörfum fólks sem hiýtur varan- lega fötlun með tímabundinni áfalla- hjálp strax í upphafi. Jafnframt hvemig unnt er að bæta úr skorti á stuðningi við fólk að lokinni sjúkrahúsvist og endur- hæfingu þegar það fer að takast á við lífið á nýjan leik. Finna leiðir til að veita nýlega fötluðum persónulega handleiðslu og félagslega hvatningu. Skipting ágóða Starfshópur um fjárhagsmál og fjár- hagsáætlun var með í fórum sínum ný- stárlegar og all róttækar tillögur um á- góðaskiptingu fjáraflana milli lands- sambandsins og félaganna, sem sam- þykkt var að vísa til ákvörðunar næsta sambandsstjómarfundar í október 1996 ásamt fjárhagsáætlun fyrir árin 1997 - 1998. 28. þingi Sjálfsbjargar, landssam- bands fatlaðra, var svo slitið um kl. 18:30 sunnudaginn 9. júní og eins og ætíð í fundarlok, sungu fulltrúar háum rómi: Við hér enda verðum grín, vegir skilja að sinni. Haltu á vinur heim til þín, hjartans kveðju minni. SJÁLFSBJÖRG Q

x

Sjálfsbjörg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.