Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1933, Side 77

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1933, Side 77
77 allar undir Staðarfell og voru allar góðar varpeyjar. Suður-af Deild- arey er Emburhöfði, ásamt Litlu- og Stóru-Nauteyjum, og fleiri hólm- um, sem alla fjarar í frá Emburhöfða, nema Dýjanesið, sem er fyrir utan ytri enda Emburhöfðans. Emburhöfði er allmikið landflæmi og hefir alla tíð verið séreign, og því ekki legið undir neina sérstaka jörð, enda var þar byggð fram undir aldamót 1700, eftir því, sem stendur í bréfabók Boga stúdents Benediktssonar á Staðarfelli. Síðasti bóndinn, sem þar bjóT~HenBæring. Málaferli urðu á milli hans og sóknarprestsins, sem þjónaði Hvammi og Staðarfelli, út-af greiðslu til prests og kirkjugjaldi. Emburhöfða-bóndinn taldi sig eiga hægra með að sækja kirkju að Dagverðarnesi en Staðarfelli, og vildi því eigi greiða gjöld til sóknarprestsins í Hvammi né Staðarfells-kirkju. Mála- rekstur þessi endaði með konungsúrskurði, og var Emburhöíða-bónd- anum leyft að eiga kirkjusókn að Dagverðarnesi, enda skyldi hann greiða lögboðin gjöld sín þangað, en ekki til Hvamms-prestakalls, svo sem prests- og kirkju-tíund, ljóstoll o. fl. Eftir að byggðin lagðist niður í Emburhöfða, hvíldi sú skylda á þeim, sem notaði Emburhöfða að greiða prestinum í Skarðs-þingum og kirkjunni í Dagverðarnesi tíundir af Emburhöfða, þar til lögunum var breytt um gjöld til prests og kirkju árið 1907. í Emburhöfða sést enn fyrir túni, túngarði og bæjar- tóftum. Af hvaða ástæðum byggðin lagðist niður þar, er mér ókunnugt, en síðan hefir Emburhöfði verið hafður með ýmsum jörðum í Fells- strandar-hreppi svo sem Arnarbæli, Stóru-Tungu, Ytra-Felli, og nú siðustu 38 ár með Kjarlaksstöðum. Á þeim tíma var mikið sótzt eftir ábúð á Emburhöfða, svo mikið, að um eitt skeið urðu málaferli út-af ábúðinni; mun það aðallega hafa gjört, að þar var talsvert mikið æðarvarp, yfir 30 pund dúns, og lambabeit fyrir allt að 100 lömb að haustinu, fram undir jól, sem á þeim árum þótti mikil hlunnindi að hafa umráð yfir. Því allt fram um síðustu aldamót voru fráfærur tíðkaðar á hverjum bæ, og því nálega öll lömb sett á vetur, og því aðeins fargað veturgömlu og fullorðnu sauðfé. Nú mun æðarvarp vera lítið í Emburhöfða, og beitin aðallega notuð fyrir hesta að vetrinum, en lítið slegið, enda eru þar fremur reitingslegar slægjur. Suður-af Emburhöfða liggja Stóru- og Litlu-Tungu-eyjar, sem eru 6 alls, auk smá-hólma. Til forna lágu 4 af þessum eyjum undir Stóru- Tungu (Langey, Ólafsey, Bjarnarey og Hrúthólmi), en 2 af þeim undir Litlu-Tungu (Bjargey og Tóftarey). Fyrir meira en öld voru eyjar þessar teknar undan þessum jörðum, sem þær bera nafn af, og byggðar eða léðar öðrum en ábúendum jarðanna. Nú fyrir all-mörgum árum hafa eyjar þessar verið seldar undan jörðunum og liggja því ekki lengur undir þær, en bera aðeins nöfn þeirra. Allar þessar eyjar eru
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.