Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2001, Síða 34

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2001, Síða 34
Bergljót Soffía Kristjánsdóttir fornsögunni. En þar tengist hún ekki aðeins persónum heldur valdakerfi (feðraveldinu) og siðalögmálum (er lúta að tdrðingu, ættarböndum, hefndarskyldu, tdnáttu, gjöfum o.fl) sem voni enn tdð lýði þegar sagan var skrifuð og lesendur þeirrar tíðar nauðaþekktu. I Utlaganum er at- burðarás hins vegar látin hvíla á kenndum sem ýmist eru slitnar úr sam- hengi menningarinnar er ól þær af sér, þannig að grundvöll þeirra skort- ir - eða þær eru látnar lafa í slíku samhengi án þess að það sé skýrt til fullnustu. Það er miður gott af því að ýmsir nútímaáhorfendur vita fátt um miðaldir. I ofanálag ætlar myndin viðtakendum annan hlut en Gísla saga. Frásögnin forna virkjar lesendur í sköpunarferli og kyndir sífellt undir vafa um hver er helsta driffjöður þess sem gerist. I Útlaganum er áhorfendum hins vegar látið fátt eftir að hugsa um; þar fer ekki aðeins lítið fyrir þematískri margræðni atburða heldur hneigist myndin bein- línis til fullskýringa, svo sem þegar sifjaspellalöngmi Gísla er afhjúpuð í draumunum en ekki ýjað að henni. A stöku stað virðist þó reynt að skapa tvíræðni þar sem fornsagan er einræð. Auður er látin kalla Véstein bróður sinn upp í til sín óveðurs- nóttina sem hann er veginn, í stað þess að þau systkin snúi „rekkjum sínum um endilangt húsið“ (21). Vésteinn hvílir því þar sem Gísla stað- ur er allajafna og áhorfendum er ekki aðeins gefinn kostur á að velta vöngum yfir hver vegandinn er - eins og í fornsögunni - heldur og hvern átti að vega. Forneskju og fjölkynngi virðist líka ætlað að styrkja undirstöður at- burðarásar í aðlöguninni. Orlaganornirnar kveikja hugmynd um sköp sem menn fá ekki rönd við reist og þar á ofan er seiði Þorgríms nefs gef- ið töluvert rúm og hann látinn gegna merkilegu hlutverki. Hin stutta athugasemd miðaldasögunnar um að Börkur hafi keypt að seiðskrattan- um svo „að þeim manni yrði ekki björg“ (31-32), sem vegið hafði Þor- grím goða, verður að ágætri sviðsetningu - enda þótt allri „ergi“ (32) sé sleppt - þar sem karlinn fremur seið ineð miklum tilburðum og hópur fólks styður hann með annarlegum köllum og gali. Eigi sviðsetningin að vekja grun um að Gísli kunni að standa berskjaldaður gegn óræðum öflum er ekki látið þar við sitja. Kynngikrafti hins óþekkta er eytt og víg seiðkarlsins gert að sjálfri forsendu þess að upp um Gísla kemst og hann hrekst í útlegð. Fáir munu ætlast til þess að inn í atburðarás Útlagans sé felldur flutn- ingur dróttkvæðu vísunnar sem verður til þess að Gísli er borinn sökum 32
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.